Til baka í yfirlit

Ávöxtun og skipting eignasafns

Hrein eign til greiðslu lífeyris var samtals 696.107 milljónir króna í árslok 2024. Hrein nafnávöxtun eignasafnsins var 11,36% á árinu sem samsvarar 6,29% raunávöxtun.

Ávöxtun og skipting eignasafns samtryggingardeildar

Hrein eign samtryggingardeildar Birtu var 669.235 milljónir króna í árslok 2024. Hrein nafnávöxtun samtryggingardeildarinnar var 11,44% á árinu sem samsvarar 6,37% raunávöxtun

Myndin sýnir þróun á eignum samtryggingardeildar á árinu 2024. Í upphafi árs stóðu eignir í 599.484 milljónum króna. Þá námu iðgjaldagreiðslur á árinu 23.366 milljónum króna. Á móti var greiddur lífeyrir að fjárhæð 22.267 milljónir króna. Nettóinnflæði til deildarinnar nam því 1.099 milljónum króna á árinu. Þá voru hreinar fjárfestingartekjur yfir þetta tímabil 69.589 milljónir króna og rekstrarkostnaður 936 milljónir króna. Í árslok 2024 stóð hrein eign deildarinnar í 669.235 milljónum króna og hækkaði því á milli ára um 69.751 milljónir króna eða um 11,64%.

Vöxtur eigna og ávöxtun árið 2024

Ávöxtun samtryggingardeildar 2024

Hrein nafnávöxtun

Hrein raunávöxtun

Hreinar fjárfestingatekjur

Milljarðar

Meðaltal hreinnar raunávöxtunar

sl. 5 ár

Meðaltal hreinnar raunávöxtunar

sl. 10 ár

Hrein eign

Milljarðar kr.

Hlutfall helstu eignaflokka í árslok 2024

Súluritið sýnir hlutfallslega skiptingu helstu eignaflokka samtryggingardeildar Birtu í árslok 2024. Hlutdeild verðbréfaeignar og innlána í erlendri mynt af heildareignum deildarinnar nam 37,9% í árslok 2024

Nafn- og raunávöxtun helstu eignaflokka samtryggingardeildar Birtu 2024

Taflan sýnir nafn- og raunávöxtun helstu eignaflokka samtryggingardeildar á árinu 2024

Nafnávöxtun Raunávöxtun
Ríkisskuldabréf 8,2% 3,3%
Skuldabréf sveitarfélaga 8,2% 3,3%
Skuldabréf lánastofnana 8,0% 3,0%
Fasteignaveðtryggð skuldabréf 8,8% 3,9%
Skuldabréf fyrirtækja 8,3% 3,4%
Innlend hlutabréf 16,8% 11,5%
Erlend hlutabréf 16,4% 11,1%
Sérhæfðar fjárfestingar 7,0% 2,1%

Samanburður eignaflokka 2024 og 2023

Taflan sýnir hlutfallslega skiptingu helstu eignaflokka samtryggingardeildar Birtu og fjárhæðir þeirra, annars vegar í árslok 2024 og hins vegar í árslok 2023

Í árslok 2024 Í árslok 2023
Hlutfallsleg skipting Í milljónum kr. Hlutfallsleg skipting Í milljónum kr.
Innlán 0,5% 3.095 0,4% 2.511
Ríkisskuldabréf 13,4% 94.649 15,2% 96.125
Skuldabréf sveitarfélaga 4,7% 25.154 5,0% 24.097
Skuldabréf lánastofnana 1,2% 8.165 1,3% 7.869
Fasteignaveðtryggð skuldabréf 17,7% 117.171 16,4% 97.598
Skuldabréf fyrirtækja 6,5% 42.955 6,4% 37.898
Innlend hlutabréf 15,1% 99.854 14,6% 86.763
Erlend hlutabréf 27,8% 184.533 28,5% 169.642
Sérhæfðar fjárfestingar 13,1% 87.098 12,3% 73.548
Þar af erlendar eignir 37,9% 250.964 37,6% 224.115

Helstu eignaflokkar innlendra skuldabréfa

Skífuritið sýnir hvernig skuldabréfaeign samtryggingardeildar Birtu skiptist í mismunandi eignaflokka í árslok 2024. Vægi eignaflokkana nam samtals 43,5% af eignasafninu. Þá var verðtryggingarhlutfall viðkomandi bréfa 87,5% í árslok 2024.

Ávöxtun og skipting eignasafns séreignardeildar

Hrein eign séreignardeildar var 22.952 milljónir króna í árslok 2024 og hækkaði um 1.802 milljónir króna frá fyrra ári. Þá námu lífeyrisgreiðslur deildarinnar 1.165 milljónum króna á árinu 2024.

Sjóðurinn býður upp á þrjár mismunandi sparnaðarleiðir í séreignardeild og tilgreindri séreign. Þær eru innlánsleið, skuldabréfaleið og blönduð leið. Í blönduðu leiðinni eru bæði skuldabréf og hlutabréf á meðan eignir skuldabréfaleiðarinnar eru nánast eingöngu skuldabréf auk lítils hluta innlána. Þá eru eignir innlánsleiðarinnar, eins og nafnið gefur til kynna, einungis innlán.

Frá ársbyrjun 2022 hafa sjóðfélagar Birtu í tilgreindri séreign geta valið á milli þessara sömu þriggja sparnaðarleiða og séreignadeildin hefur boðið upp á. Fyrir þann tíma var einungis ein sparnaðarleið í boði fyrir tilgreindu séreignina.

Nafn- og raunávöxtun leiðanna á árinu 2024 ásamt 5 og 10 ára meðaltali hreinnar raunávöxtunar má sjá hér fyrir neðan.

Séreignardeild árið 2024

Ávöxtun og skipting eignasafns tilgreindrar séreignardeildar

Tilgreind séreign er sérstök tegund séreignarsparnaðar.

Sjóðfélagar geta valið að ráðstafa allt að 3,5% skylduiðgjaldsins í séreignarsjóð. Innistæða í tilgreindri séreign er eign þess sem leggur hana fyrir og um hana gilda sömu reglur og um hefðbundna séreign hvað íslensk erfðalög varðar, þ.e. tilgreind séreign erfist við fráfall.

Hrein eign tilgreindrar séreignardeildar var 3.920 milljónir króna í árslok 2024 og jókst um 772 milljónir króna frá fyrra ári. Þá námu lífeyrisgreiðslur deildarinnar 205 milljónum króna á árinu 2024.

Súluritið sýnir fimm ára meðaltals ávöxtun tilgreindu séreignarinnar. Á árunum 2020-2021 var eingöngu ein sparnaðarleið í boði og er ávöxtunin því sú sama í öllum þremur sparnaðarleiðunum á þessu tveggja ára tímabili. Ávöxtun sl. þriggja ára tekur hins vegar mið af því hvaða sparnaðarleið sjóðfélagi valdi í ársbyrjun 2022.

Tilgreind séreign