Til baka í yfirlit

Lífeyrir

Sjóðfélagar ávinna sér rétt til ævilangs lífeyris við starfslok. Skyldusparnaður veitir jafnframt rétt til örorkulífeyris vegna skertrar starfsgetu, rétt maka til makalífeyris við fráfall sjóðfélaga og rétt barna til barnalífeyris.

Meginhlutverk Birtu lífeyrissjóðs er að greiða lífeyri

Meginhlutverk Birtu lífeyrissjóðs er að tryggja sjóðfélögum, eftirlifandi mökum þeirra og börnum, lífeyri samkvæmt ákvæðum samþykkta sjóðsins. Með aðild að Birtu lífeyrissjóði ávinna sjóðfélagar sér rétt til ævilangs eftirlaunalífeyris. Sjóðfélagar, sem verða fyrir orkutapi sem metið er 50% eða meira, njóta réttar til örorkulífeyris og eftir atvikum barnalífeyris í samræmi við ákvæði samþykkta. Við fráfall sjóðfélaga stofnast réttur til makalífeyris og barnalífeyris í samræmi við samþykktir sjóðsins.

Fjölgun lífeyrisþega og lífeyrisgreiðslur

  • Lífeyrisþegar voru 18.767 í árslok 2024 og þeim fjölgaði á árinu um 5,7%.
  • Á árinu 2024 hófu 2.076 sjóðfélagar töku eftirlaunalífeyris en 2.146 árið 2023.
  • Lífeyrisgreiðslur samtryggingardeildar námu 22.107 milljónum króna árið 2024, sem var 13,0% aukning frá fyrra ári.
  • Lífeyrisgreiðslur fylgja breytingum á vísitölu neysluverðs til verðtryggingar. Vísitalan hækkaði um 4,8% á árinu 2024.
  • Lífeyrisbyrði sjóðsins, þ.e. lífeyrisgreiðslur í hlutfalli af iðgjaldagreiðslum, var 95,3% á árinu 2024 en 84,8% árið áður.
  • Meðalaldur við upphaf töku eftirlaunalífeyris sl. 5 ára er 65,6 ár.

Aldursskipting nýrra eftirlaunaþega

Myndin sýnir á hvaða aldri eftirlaunaþegar eru þegar þeir hefja töku lífeyris

Fjöldi

Fjöldi lífeyrisþega í samtryggingardeild

2024 2023 Breyting
Eftirlaunalífeyrir 14.210 13.166 7,35%
Örorkulífeyrir 2.705 2.741 -1,33%
Makalífeyrir 2.072 2.059 0,63%
Barnalífeyrir 339 343 -1,18%

Lífeyrisgreiðslur samtryggingardeildar í milljónum kr.

2024 2023 Breyting
Eftirlaun 18.412 15.853 13,91%
Örorkulífeyrir 2.399 2.184 8,97%
Makalífeyrir 1.200 1.105 7,88%
Barnalífeyrir 97 93 3,24%
Samtals: 22.108 19.235 12,99%

Fjölskyldubætur

Birta er eini sjóðurinn sem greiðir fjölskyldubætur

Greiðsla fjölskyldubóta árið 2024
  • Fjölskyldubætur eru greiddar einu sinni við fráfall sjóðfélaga yngri en 67 ára og hafa þann tilgang að létta undir með nánustu aðstandendum þegar ungir sjóðfélagar falla skyndilega frá. Fjölskyldubætur skiptast í maka- og barnagreiðslur.
  • Á árinu 2024 voru greiddar út 46,9 milljónir króna í fjölskyldubætur vegna fráfalls 18 sjóðfélaga.
  • Greitt var til 17 maka samtals 44,7 milljónir króna.
  • Barnagreiðslur voru greiddar til 11 barna eða samtals 2,2 milljónir króna.

Útborgun úr séreignardeild

Greiddar voru 1.165,3 milljónir króna úr séreignardeild

Þar af var rúmlega 290,8 milljónum króna ráðstafað inn á húsnæðislán rétthafa í samræmi við lög nr. 40/2014 um séreignarsparnað og ráðstöfun hans til greiðslu húsnæðislána og húsnæðissparnaðar. Í árslok 2024 áttu 31.390 einstaklingar réttindi í séreignardeild og virkir sjóðfélagar voru 2.544.

Greiðslur séreignardeildar í milljónum kr.
2024 2023 Breyting %
Iðgjöld 1.089 1.055 3,12%
Útborgun 874 601 31,24%
Ráðstöfun inn á húsnæðislán 291 287 1,37%

Útborgun úr tilgreindri séreignardeild

Í árslok 2024 áttu 2.357 einstaklingar réttindi í tilgreindri séreignardeild.

Virkir sjóðfélagar í tilgreindri séreignardeild voru 1.567. Á árinu 2024 námu iðgjaldagreiðslur til tilgreindrar séreignardeildar, fyrir réttindaflutninga og endurgreiðslur 614,9 millj. kr.

Greiðslur tilgreindrar séreignardeildar í milljónum kr.
2024 2023 Breyting %
Iðgjöld 578 561 2,94%
Útborgun 205 183 10,73%