Til baka í yfirlit

Trygginga­fræðileg staða

Tryggingafræðileg athugun á stöðu Birtu lífeyrissjóðs í lok árs 2024 var unnin af Bjarna Guðmundssyni tryggingastærðfræðingi í samræmi við ákvæði 8. greinar samþykkta sjóðsins.

Tryggingafræðileg athugun

Í tryggingafræðilegri athugun felst samanburður á verðmæti eigna sjóðsins og iðgjalda við skuldbindingar til greiðslu lífeyris sem leiðir af samþykktum sjóðsins. Lög um starfsemi lífeyrissjóða og samþykktir sjóðsins setja vikmörk fyrir þann mun sem heimilaður er milli eigna og skuldbindinga. Birta lífeyrissjóður veitir réttindi í samtryggingardeild og rekur auk þess séreignardeild og tilgreinda séreignardeild. Í tryggingafræðilegri athugun er eingöngu fjallað um skuldbindingar og eignir samtryggingardeildar. Mat á skuldbindingum byggir á upplýsingum um réttindi sjóðfélaga úr réttindabókhaldi sjóðsins. Við mat eignaliða er einnig stuðst við upplýsingar úr ársreikningi og fjárhagsbókhaldi sjóðsins.

Skuldbindingar vegna iðgjalda, sem greidd hafa verið til sjóðsins til loka árs 2024, kallast áfallnar skuldbindingar. Heildarlífeyrisskuldbindingar taka einnig tillit til þeirra skuldbindinga sjóðsins sem áætlaðar eru fyrir réttindum ógreiddra iðgjalda greiðandi sjóðfélaga um síðastliðin áramót. Ákvæði laga um heimil vikmörk lúta að mun á heildarskuldbindingum og endurmetnum eignum að viðbættu verðmæti framtíðariðgjalda.

Helstu reikniforsendur

  • Raunávöxtun eigna sjóðsins verði 3,5% árlega.
  • Notast er við reiknilíkan Félags íslenskra tryggingastærðfræðinga (FÍT) um lækkun dánartíðni til framtíðar. Gert er ráð fyrir að lífslíkur sjóðfélaga og rétthafa hafi árið 2016 farið eftir þeim lífslíkum sem notaðar voru við tryggingafræðilega athugun síðasta ár:
    • Lífslíkur sjóðfélaga: samkvæmt reynslu íslenskra lífeyrissjóða 2014-2018.
    • Lífslíkur rétthafa: samkvæmt íslenskri reynslu 2014-2018
    • Eftir 2016 muni svo lífslíkur breytast í samræmi við reiknilíkan FÍT.
  • Örorkulíkur sjóðfélaga: samkvæmt reynslu íslenskra lífeyrissjóða 2018-2023, aðlagað að reynslu Birtu sérstaklega notað 70% af meðaltali fyrir karla og 80% fyrir konur.
  • Giftingar- og barneignalíkur : Byggt á upplýsingum frá þjóðskrá fyrir árin 2019- 2023.
  • Lífeyrisréttindi eru verðtryggð miðað við vísitölu neysluverðs.
  • Árlegur rekstrarkostnaður Birtu lífeyrissjóðs er áætlaður sem meðaltal kostnaðar árin 2022-2024, uppfært til verðlags í lok árs 2024 og ætlað fyrir sama kostnaði í 50 ár núvirt með sömu vöxtum og lífeyrisskuldbindingar.
  • Lífeyrisaldur er settur 67 ár eða aldur sjóðfélaga sé hann hærri.

Forsendur um lífslíkur eru óbreyttar frá síðustu tryggingafræðilegri athugun hvað varðar notkun á reiknilíkani sem áætlar lækkun dánartíðni til framtíðar í stað þess að styðjast eingöngu við reynslu fyrri ára.

Skuldabréf í eigu sjóðsins eru núvirt miðað við sömu ávöxtunarforsendu og skuldbindingar, þ.e. 3,5% umfram hækkun vísitölu neysluverðs til verðtryggingar. Óverðtryggðar eignir eru núvirtar miðað við 3,5% ávöxtun umfram verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands, sem var 2,5% þegar athugunin var gerð. Útreikningar á endurmati eigna eru yfirfarnir af starfsmanni sjóðsins.

Tryggingafræðilegt mat á lífeyrisskuldbindingum ber að skoða sem vænta niðurstöðu úr reiknilíkani þar sem byggt er á forsendum háðum óvissu. Mismunur niðurstöðu reiknilíkansins og raunveruleika getur komið fram vegna tilviljanasveiflna, einkum þegar sá hópur sem reiknað er fyrir er lítill og einnig vegna þeirrar miklu óvissu sem er um forsendur sem notaðar eru. Forsendur reiknilíkansins lúta að vöxtum, dánarlíkum og öðrum forsendum áratugi fram í tímann og því nánast óhjákvæmilegt að frávik komi fram frá þeim forsendum sem reiknað er eftir.

Niðurstaða athugunarinnar

Niðurstaða athugunarinnar er að verðmæti eigna sjóðsins, að meðtöldum iðgjöldum reiknast 986.100 milljónir króna og mat skuldbindinga vegna lífeyris að viðbættum kostnaði vegna rekstrar 1.034.908 milljónir króna. Mismunur eigna og skuldbindinga reiknast því -48.808 milljónir króna eða -4,72% af skuldbindingum.

Með síðustu samþykktarbreytingum ávinnur hver fæðingarárgangur sér mismunandi rétt til framtíðar, sem er í samræmi við betri lífslíkur þeirra sem yngri eru og því hefur hver árgangur nú sína réttindatöflu sem á þó aðeins við um iðgjöld greidd eftir árið 2023, þar sem ekki er gerð breyting á áföllnum réttindum.

Tryggingafræðileg staða sjóðsins batnar töluvert frá lokum síðasta árs. Árið einkenndist af nokkrum hækkunum verðlags og þar með skuldbindinga sem breytast með vísitölu neysluverðs til verðtryggingar. Frá janúar til janúar hækkaði vísitalan um 4,6%. Ávöxtun sjóðsins miðað við endurmetna eign er rétt um 6,3% umfram hækkun vísitölunnar, sem er umfram vaxtaforsendur útreikninga. Veldur það töluvert bættri áfallinni stöðu. Tryggingafræðileg staða er því komin yfir -5% og staða sjóðsins því komin úr þeirri stöðu að eiga á hættu á að grípa til aðgerða í samræmi við ákvæði laga nr. 129/1997 ef staða reiknast umfram -5% en innan við -10%.

Tryggingastærðfræðingur vinnur úr gögnum af ýmsum toga við útreikninga

Gögn sem tryggingastærðfræðingur vinnur með eru ekki á persónugreinanlegu formi

Tryggingarstærðfræðingur fær gögn úr réttindabókhaldi sjóðsins tengd iðgjöldum og lífeyrisgreiðslum, m.a. er tengjast réttindaöflun og iðgjaldagreiðslur þeirra sem hafa greitt til sjóðsins, tegund lífeyris sem greiddur er, fjárhæð lífeyris, upplýsingar um fæðingardag og fleira.

Úr ársreikningum sjóðsins fengust upplýsingar um kostnað við rekstur síðastliðin þrjú ár og auk þess um eignastöðu sjóðsins. Úr verðbréfakerfi eru fengnar upplýsingar um greiðslukjör skuldabréfa og gengi hlutabréfa og verðbréfasjóða á markaðsverði. Iðgjaldagreiðslur ársins 2024 hafa verið bornar saman við iðgjaldagreiðslur samkvæmt ársreikningi og lífeyrisgreiðslur desember 2024 bornar saman við lífeyrisgreiðslur ársins samkvæmt ársreikningi. Þá hafa upplýsingar um réttindi sjóðfélaga verið bornar saman við samsvarandi upplýsingar frá athugun fyrra árs. Þessar athuganir benda ekki til annars en að byggja megi mat skuldbindinga sjóðsins á þeim gögnum sem fyrir liggja úr réttindakerfi en gögn hafa ekki verið sannreynd með samanburði við frumgögn eða öðrum hætti.

Yfirlit um tryggingafræðilega stöðu samtryggingardeildar

Taflan sýnir niðurstöðu úttektar á heildarskuldbindingu sjóðsins 2024 og til samanburðar árið 2023. Fjárhæðir eru í þúsundum króna.

Eignir 2024 2023 Breyting milli ára
Hrein eign til greiðslu lífeyris 669.235.415 599.483.570 11,6%
Mismunur á bókfærðu verði og núvirði skuldabréfa 4.179.425 6.855.834 -39,0%
Núvirði framtíðariðgjalda 312.684.637 308.484.726 1,4%
Eignir samtals 986.099.477 914.824.130 7,8%
Skuldbindingar 2024 2023 Breyting milli ára
Ellilífeyrir 909.873.153 856.016.088 6,3%
Örorkulífeyrir 56.065.324 57.016.821 -1,7%
Makalífeyrir 43.989.304 42.003.903 4,7%
Barnalífeyrir 1.799.081 2.241.739 -19,7%
Fjölskyldulífeyrir 950.209 1.073.826 -11,5%
Rekstrarkostnaður 22.230.599 21.456.727 3,6%
Skuldbindingar samtals 1.034.907.671 979.809.103 5,6%
Eignir umfram skuldbindingar -48.808.194 -64.984.974
Í hlutfalli af skuldbindingum í lok árs -4,72% -6,63%

Yfirlit um breytingu á áföllnum lífeyris­skuldbindingum samtryggingardeildar

Skuldbindingar samtryggingardeildar eru metnar meðal annars út frá áföllnum lífeyrisskuldbindingum sem sýnir áunnin réttindi sjóðfélaga um áramót. Myndin sýnir áfallna skuldbindingu vegna áunninna réttinda í byrjun árs 2024 og stöðuna í árslok 2024 ásamt sundurgreiningu á þeim þáttum sem urðu á árinu 2024 bæði til lækkunar og hækkunar á áfallinni skuldbindingu.

Breyting á áföllnum lífeyrisskuldbindingum samtryggingardeildar

Niðurstöður

Tryggingafræðileg staða sjóðsins er -4,72%

Tryggingafræðileg úttekt miðað við árslok 2024 sýnir að heildarskuldbindingar sjóðsins voru 4,72% umfram heildareignir en voru 6,63% umfram heildareignir í árslok 2023. Niðurstöður tryggingafræðilegrar stöðu Birtu lífeyrissjóðs, miðað við árslok 2024, má sjá í yfirliti um tryggingafræðilegra stöðu samtryggingardeildar í ársreikningi. Í skýringu 15 er yfirlit um breytingu á tryggingafræðilegri stöðu samtryggingardeildar.

Helstu þættir sem hafa áhrif á stöðu sjóðsins eru ávöxtun, lýðfræðilegir þættir og rekstrarkostnaður. Lífeyrissjóðurinn framkvæmir reglulega álagspróf en markmiðið með því er að meta hvort tryggingafræðileg staða sjóðsins verði undir -10% miðað við mismunandi fyrirframgreinda álagsþætti. Niðurstöður álagsprófs eru í skýringu 18.3. í ársreikningi.