Birta lífeyrissjóður hefur sett sér markmið í umhverfismálum og skilgreint mikilvæga umhverfisþætti í starfseminni. Þessum þáttum er stýrt og þeir vaktaðir sérstaklega.
Mikilvægir þættir í starfsemi Birtu með tilliti til umhverfisáhrifa
Umhverfisþættir sem skilgreindir eru mikilvægir í starfseminni hafa verið metnir með tilliti til umhverfisáhrifa og áhættu. Þeir eru vaktaðir og niðurstöður skráðar í vöktunarskjal svo hægt sé að fylgjast með þróun þeirra með tilliti til markmiða sem sjóðurinn hefur sett sér.
Birta lífeyrissjóður beinir viðskiptum sínum til birgja sem hafa stefnu í umhverfismálum, sé þess kostur, og vekur athygli birgja á stefnu og starfsháttum sjóðsins í umhverfismálum.
Raforkunotkun í starfsemi Birtu fellur undir umhverfisþáttinn. Rekstur skrifstofuhúsnæðis sjóðsins krefst lágmarksorku. Fylgst er með orkunotkun frá ári til árs eins og kostur er en rafmagns- og heitavatnsnotkun er að hluta til mæld á sameiginlegum orkumælum hússins og er hlutfall sjóðsins reiknað sem hlutfall af nýttum fermetrafjölda hússins. Sjóðurinn setur sér markmið um orkusparnað og nýtingu orkunnar sett til eins árs í senn. Hlutdeild sjóðsins í fermetrafjölda hússins er 50,99%. Rafmagnsnotkun sjóðsins dróst saman um 1,2% mælt í kílóvattstundum á milli ára miðað við útreiknaða hlutdeild í rafmagnsnotkun alls hússins.
Umhverfisþátturinn tekur til notkunar á heitu og köldu vatni á skrifstofu sjóðsins. Heitavatnsnotkunin tengist að miklu leyti upphitun húsnæðis en annars leitast starfsmenn við að takmarka notkun á heitu og köldu vatni. Notkun á heitu vatni jókst um 27,7% og notkun á köldu vatni dróst saman um 74,1% í rúmmetrum talið.
Umhverfisþátturinn á við um notkun á gæðapappír og kynningarefni á pappírsformi.
Starfsmenn eru hvattir til að lesa frekar á skjá en prenta skjöl en prenta þá báðum megin á blöð nema annars sé krafist. Gætt er að því að pappír sem notaður er komi úr nytjaskógum. Ljósritunarpappír er skráður í vöktunarskjal við innkaup og þannig fylgst með notkuninni.
Stafræn þjónusta við sjóðfélaga hefur aukist mjög í seinni tíð og með því móti dregur mjög úr pappírsnotkun og prentun. Mestu máli skiptir þó að þjónusta sjóðsins verður á þennan hátt einfaldari, skjótari og skilvirkari en áður. Sjóðfélagar geta í mörgum tilvikum rekið erindi sín gagnvart sjóðnum með tölvusamskiptum frá heimili eða vinnustað og sparað sér ferðir á skrifstofu Birtu.
Umhverfisþátturinn varðar notkun allra merkingarskyldra efna í starfsemi sjóðsins. Heildarmagnið er óverulegt og leitast við að nota umhverfisvæn efni til þrifa.
Umhverfisþátturinn varðar annan úrgang frá sjóðnum en spilliefni, til dæmis almennt sorp, pappír, dagblöð, tímarit, plast, skilagjaldsumbúðir og trúnaðargögn. Leitast er við að flokka sorp er fellur til í starfseminni. Fastur úrgangur er vigtaður tvisvar á ári og niðurstöður skráðar í vöktunarskjal.
Sjóðurinn hefur að markmiði að minnka úrgang sem fellur til í starfseminni.
Sjóðurinn leitast við að nota endurunnin hráefni í starfsemi sína eins og við verður komið.
Eldsneytisnotkun er umhverfisþáttur Birtu og varðar akstur starfsmanna á einkabílum á vegum vinnu og ferðir til og frá vinnu. Undir sama umhverfisþátt fellur losun gróðurhúsalofttegunda vegna flugferða starfsmanna á vegum sjóðsins.
Upplýsingar um akstur og flug eru færðar í reiknilíkan sem skilar niðurstöðum í formi kolefnisfótspors. Á árinu 2024 var farið í 31 vinnutengdan fluglegg sem losuðu um 10,1 tonn af gróðurhúsalofttegundum sem er hækkun frá fyrra ári um 0,2 tonn. Til að kolefnisjafna flugferðirnar þarf að gróðursetja 94 tré en Birta hefur komið upp Birtuskógi í Haukadal þar sem starfsemi sjóðsins er kolefnisjöfnuð og voru gróðursett 7.500 tré þar á árunum 2018 til 2020. Nánari upplýsingar má finna í viðauka við ársreikning sjóðsins.
Rekstur sjóðsins
681 | |||||